|
Samtenging hinna ýmsu kerfishluta í Stólpa býður upp á einstaka samhæfingu sem gefur kost á að stjórna birgðum á afar hagkvæman hátt. Birgðakerfi Er samtengt sölukerfi, sölupantanakerfi, verkbókhaldi, pantanakerfi, tollkerfi, verðútreikningi, framleiðslukerfi og lánardrottnakerfi. Kerfið heldur saman upplýsingum um vörur á lager, í pöntun, vörur í vinnslu og hráefni. Kerfið gerir ráð fyrir mörgum lagerstaðsetningum. Með birgðakerfinu fylgja öll nauðsynleg skráningasvæði til að tengjast vefverslun eða birta verðskrá á netinu. Þegar pöntun er gerð má fá tillögu úr birgðakerfinu, byggða á sölusögu og æskilegu þjónustustigi. Um leið og tollskýrsla er gerð leiðréttist pantanakerfið sjálfvirkt. Tollkerfið sækir upplýsingar um tollflokkinn í birgðakerfið og í verðútreikningi er gerður samanburður við eldra verð áður en ný birgðastaða er uppfærð. Í framleiðslukerfinu eru geymdar uppskriftir að framleiðsluvörum. Við verðbreytingu er hægt að endurreikna uppskriftir og framlegð. Þegar framleiðslukerfið er notað má láta það breyta birgðastöðu fullunninna vara og draga hráefnisnotkun frá um leið. Birgðauppgjör Mælt er með því að prenta birgðauppgjör mánaðarlega, gjarnan samantekið eftir vöruflokkum. Hægt er að sleppa flokkum sem ekki eiga að koma með í uppgjöri og vista val þannig að auðvelt verið að kalla fram sambærilegt uppgjör síðar. Þar sem engin bein tenging er á milli birgðakerfis og fjárhagsbókhalds þarf að bóka birgðabreytingu mánaðarlega til að fá vörunotkunina rétta. Ef ekki er óskað eftir að bóka birgðabreytingar má nota dagbók sem ekki er uppfærð og biðja um rekstrarreikning sem tekur hana með. Vörunotkun Það eru tvær leiðir til að bókfæra rétta vörunotkun mánaðarlega. Í fyrsta lagi með að gjaldfæra vörukaup og bóka síðan mánaðarlega birgðabreytingu. Í öðru lagi má eignfæra birgðir og gjaldfæra síðan mánaðarlega vörunotkun. Besta leiðin er að prenta sölusögu en þar kemur fram kostnaðarverð seldrar vöru. Vörutalning Best gefst að hafa sívirkt birgðaeftirlit og talningar. Hægt er að taka fyrir ákveðnar vörur eða hillur, telja og leiðrétta. Birgðatalningalista má vista og þá þarf einungis að skrá magn þeirra vörutegunda sem breyta þarf. Ath! Gætið þess að skrá á réttar dagsetningar þegar verið er að skrá lagerleiðréttingar samkvæmt talningu. Hægt er að skrá leiðréttingar síðar, þ.e. þó byrjað sé að selja og skrá ný innkaup. Birgðapantanir Sérstakt kerfi er til að halda utan um pantanir til að gera vinnubrögð skilvirkari. Hægt er að útbúa pantanatillögur og kerfið getur nýtt vörunúmer birgja. Við vörumóttöku flytjast vörur beint í birgðaskráningadagbókina í birgðakerfinu til verðútreiknings eða í tollkerfið fyrir erlendar pantanir. Vörumóttaka Tryggið að mótttekið magn sé í samræmi við pöntun og vörureikning. Til eftirlits með verðbreytingum sést eldra verð í birgðaskráningadagbók og eins í verðútreikningi þegar tollkerfið er notað. Pantanakerfið gefur kost á að prenta móttökulista. Í Almennt/Límmiðaprentun gefst kostur á að prenta vöru/hillumerkingar fyrir allar vörur sem breytast. Til hagræðis gefst kostur á að nota lófatölvur og strikamerki við vörumóttöku, birgðaskráningu, afgreiðslu og sölu. Sölukerfi Sölukerfinu fylgir uppskriftakerfi sem gerir auðvelt að selja samsettar vörur, s.s. tölvur og láta birgðir íhluta stemma. Sölukerfið gerir ráð fyrir útflutningi og við hvert vörunúmer má tengja erlendar verðskrár og heiti. Sölusögu má greina eftir viðskiptavinum, viðskiptamannahópum, sölumönnum, vörum eða tilvísunum. Gefur áður óþekkta möguleika vegna einstaks sveigjanleika í uppsetningu, t.d. er hægt að skrá tilvísunarnúmer (seríalnúmer) við hverja vörulínu á reikningi. Með sveigjanlegu afsláttakerfi má gera sérsamning við hvern viðskiptavin.
|