Verkbókhald

Gott verkbókhald er grundvallaratriði í rekstri, sérstaklega í fyrirtækjum sem vinna eftir verk- eða verkefnamiðuðum rekstri, s.s. í byggingariðnaði, þjónustufyrirtækjum eða hugbúnaðargerð. Gott verkbókhald tryggir yfirsýn yfir raunkostnað, söluverð og arðsemi verka, og er forsenda fyrir hagkvæmni og arðsemi verkefna.

Stólpi hefur allar götur lagt mikla áherslu á öflugt verkbókhald fyrir íslenskan iðnað. Nýtt app í snjallsíma, samtengt Verkbókhaldi Stólpa, einfaldar verulega skráningar starfsmanna og bætir jafnframt gæði skráninga.

  • Nákvæm skráning vinnu, efnisnotkunar og akstur
    1. Starfsmenn skrá vinnu sína (DV, YV, HV), efni eða akstur í app frá snjallsíma eða spjaldtölvu í einföldu viðmóti í hvaða verki er unnið, hvað þeir eru að gera og hvenær. Skráningar skila sér samstundis í Stólpa sem veitir verkstjóra nákvæma yfirsýn yfir allar skráningar. Einfalt er fyrir verkstjóra að yfirfara/lagfæra skráningar starfsmanna, gerist þess þörf, áður en þær eru endanlega staðfestar á verkið. Starfsmenn hafa einnig góða yfirsýn í appinu yfir sínar eigin skráningar og geta lagfært þær eða eytt með einföldum hætti.
    2. Í gegnum rafræna innkaupareikninga er hægt með einni aðgerð að skrá/staðfesta allt aðkeypt efni beint á hvert verk í vinnslu með réttri álagningu til verkkaupa. Handvirkar og ónákvæmar efnisskráningar starfsmanna í snjallsíma verða með þessu lágmarkaðar eins og kostur er.
  • Yfirsýn verka og reikningagerð
    1. Verkbókhaldið veitir góða yfirsýn yfir öll verk í vinnslu á völdu tímabili og fjárhagslega afkomu hverrar skráningar eða verksins í heild. Auðvelt er að bæta við eða breyta skráningum ef þess gerist þörf.
    2. Með einni aðgerð útbýr verkbókhaldið sölureikning í samræmi við skráningar verks ásamt ítarlegri sundurliðun í viðhengi sé þess óskað.
    3. Kerfið aðgreinir hvaða skráningar er búið að rukka fyrir áður og hvaða skráningar á eftir að rukka fyrir svo mjög einfalt er að gefa út marga reikninga fyrir lengri verk.
    4. Kerfið heldur sjálfvirkt utan um afslætti viðskiptavina eða stakra verka sem auðvelt er þó að breyta sé þess óskað. Föst tilboðsverð í vinnu og/eða efni eru einnig í kerfinu.
  • Vinnuskráningar starfsmanna yfir í launakerfi
    1. Með einni aðgerð fara vinnuskráningar starfsmanna (DV/YV/HV) yfir í launakerfi Stólpa.
  • Góð yfirsýn fyrir stjórnendur
    1. Skýrslur, töflur og mælaborð sem veita innsýn í framvindu verka, nýtingu starfsfólks og afkomu.

 

9 - 16 virka daga
Lokað um helgar
Borgartúni 28, 4 hæð
105 Reykjavík
Allur réttur áskilinn Stólpi Viðskiptalausnir ehf.
databaseselectmagnifier